eitt og annað

ehemm

27.04.2007 23:03:57 / reitjel

ja hérna hér

Afsakið hlé segi ég nú bara.

Þetta blogg mitt datt alveg uppfyrir í dágóðan tíma, alveg óvart. Eða svoleiðis. Missti soldið áhugann. En nú verður gerð bót á máli. Bót á máli! segir maður það? Hvernig er hægt að bæta mál manns? OK alveg róleg Rakel, jú er ekki hægt að bæta mál alveg eins og að bæta dekk. Allavega var það reynt þegar ég renndi við í Bílkó til að fá umfelgun. Alveg ótrúleg ferð. Dæmi um hvernig lítið mál eins og umfelgun getur orðið að stóru og dýru máli. Mætti á svæðið á góðum tíma eftir að séð um morgunin langa röð bifreiða í sömu erindagjörðum og ég. Ákvað því að mæta frekar í fyrra fallinu seinni partinn til að sleppa við að bíða of lengi. Þar sem ég er svo spillt í vinnunni þá var það lítið mál að yfirgefa staðinn snemma. Eftir smá bið var mér bent á að renna bílnum inn sem ég og gerði og þá byrjaði ballið. Þar tóku á móti mér tveir erlendir starfsmenn sem er allt gott og blessað nema mér fannst öruggara að fylgjast með úr fjarlægð svona til að vera viss um að allt færi nú á sinn stað. "Dis put in front, dis put back" Var nefnilega með 2 nýleg dekk og 2 sæmileg dekk. Fljótlega kom í ljós að eitt sæmilega dekkið var ekki svo sæmilegt og fjórir stóðu þarna yfir dekkinu, að ræða málin. Á útlensku. "tire no good, you buy new one" "Ah ok" sagði ég með trega. Þá kom annar og sagði: "patch it!" Hinir voru eitt stórt spurningamerki og litu hver á annan. Það var eins og þeir hugsuðu með sér hvort hann vissi ekki að allt gengi út á að selja ný dekk. Eftir að hafa útskýrt fyrir þeim að fyrst þyrfti að bæta dekkið og sjá svo til hvort það gengi þá mætti ræða dekkjasölu. Ég féllst á það, því miður, því það tók soldinn tíma. Og ég átti eftir að sækja Katrínu Birnu á leikskólann. Eftir hálftíma patching kom í ljós að það virkaði ekki og ég þurfti að kaupa nýtt dekk.  Svo ég var með tvö nýleg dekk að framan, eitt sæmilegt og eitt nýtt að aftan. Frekar lame en ég hafði ekki tíma til að standa frekar yfir þeim og ákveða frekar framhald. Brunaði því heim, sótti stelpuna og sannfærði Hrafn að fara í eina verslun. Á meðan lak úr öðru nýlega dekkinu að framan!! Án þess að orðlengja það eitthvað frekar þá var ég orðin pirruð á þessum dekkjum og Hrafn ekki sáttur að þurfa að skipta um dekk í roki og rigningu. Svo ég mætti daginn eftir, brosti mínu blíðasta og þeir mundu allir eftir mér. Ótrúlegt. Gatið á þessu dekki reyndist vera það stórt að það var engin leið að gera við það svo ég ákvað að að kaupa 3 ný dekk til viðbótar svo ég lenti nú ekki meira í neinu ruglu. Best að hafa bara nýjan umgang undir bílnum. Og þar sem allir mundu svo vel eftir mér þá þurfti ég bara að greiða fyrir dekkin, ekki vinnuna. Sem ég var afar sátt við. Og þeir seldu dekk. Allir sáttir. Og hver er svo heildarniðurstaðan? Ef þið eruð með nýleg og sæmileg dekk fengin frá öðrum, látið umfelgunargæjana allavega leita að leka á öllum dekkjunum áður en þau fara undir.

Góða helgi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 09:49:24 / reitjel

Fréttir

Bara láta vita að daman, þe ég, er byrjuð að vinna á Náttúrufræðistofu Kópavogs OG prinsessan, þe Katrín Birna, er í aðlögun á leikskólanum. Vonandi gengur allt vel þar en það er soldið scary hvað þar eru mörg börn! 8| En allavegan nú er heldur betur ærin ástæða til þess að renna við á NatKop og heilsa upp á mastersnemann, þe mig. :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 12:48:47 / reitjel

Tannburstinn minn!

Hver kannast ekki við þá erfiðleika sem fylgja því að fá sér nýjan tannbursta? Sá gamli er voða þægilegur því hann hefur gengið í gegnum ákveðið aðlögunarferli en því miður e.t.v. hættur að gera sitt gagn vegna slits. Þegar ég hef fengið mér nýjan og þá eftir að hafa staðið fyrir framan alltofmikiðframboðs hilluna af tannburstum þá hefur sá nýi oft verið of harður eða hausinn e-ð öðruvísi eða bara e-ð ekki rétt. Kunnulegt? En svo gerðust undur og stórmerki um daginn. Mín ákvað að kaupa sér nýjan tannbursta og var ekkert að dvelja of lengi fyrir framan ofmikiðframboðs hilluna og greip því það sem augun sáu fyrst og minni leist vel á enda hét hann supersoft  OG hann kostaði bara 200 kall. Hljómar mjög vel. Og það sem meira er, hann er meiriháttar :haha:  Hann er svo mjúkur og góður að maður hlakkar til að tannbursta sig. Magnað. 8) Ég held ég sé ástfanginn af tannburstanum mínum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 22:15:13 / reitjel

Líffræðisamkundan

Heil og sæl ágætu vinir (með tilvísun í að ágætt er betra en gott)!

Kærar þakkir fyrir líffræðisamkunduna (eða kuntuna eins og sumir höfðu orð á). Það er ALLTAF gaman þegar góðir líffræðingar hittast á góðu kvöldi yfir guðaveigum. Ég kem ekki til með að tíunda hvað fór fram á kvöldinu, aðeins þeir sem voru viðstaddir geta rifjað upp einstök atriði en ljóst var þó að margra var saknað. Maður verður þó að skála  fyrir 278 merktum svölum og frétt í morgunblaðinu og virða störf stígvélalíffræðinga sem fórnuðu gleðskapnum fyrir ástríðuna. Skál!

Vona að kvöldið hafi endað vel hjá miðbæjarrottunum og að þeir hafi ekki lent í neinum slagsmálum en það var víst óvenjumikið um slíkt þessa nótt. Og menn eru hissa á að ég hafi misst áhugan á bæjarröltinu.

Þar sem barnið var í pössun var freistað þess að sofa út. Hrafn vaknaði klukkan níu og ég fór fram úr stuttu síðar eftir vonlausa baráttu við útsofelsið. Við höfum gjörsamlega glatað þessum einstaka hæfileika að sofa út. Njótið vel á meðan þið getið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 14:22:58 / reitjel

Henda eða geyma?

Ég er safnari að eðli mínu rétt eins og formæður mínar voru (sko ekki mamma, hún hendir öllu eða gefur hlutina frá sér). Það mátti engu henda þegar ég var minni því allir litlu hlutirnir, frá skiptimiðum til óskabeina úr kjúklingi, skiptu gífurlega miklu máli í mínu lífi og voru mér hjartans mál. Versti dagurinn þá var þegar mamma "tók til" í herberginu mínu sem þýðir að hún henti því sem henni fannst drasl en var afar verðmætt í mínum huga. Svona dagar gleymast sennilega aldrei. En þrátt fyrir litla safnarann sem er btw í krabbamerkinu og heldur þar af leiðandi mjög fast í sína hluti þá hafa þeir horfið á leið minni í gegnum árin. Maður verður bara að reyna að muna. Og læra. Sumt má fara í ruslið. Þetta er mikilvæg lexía sem ég hef lært síðustu árin. Það má henda. Sumu. Ekki öllu þó og Hrafn spyr alltaf hvort það megi henda hinu eða þessu. Annað sem ég hef lært og fundið fyrir er að það fylgir þessu ákveðið frelsi og einfaldleiki, þeas að henda. Það sem er komið í ruslið gleymist fljótt og er ekki lengur fyrir manni með tilheyrandi vangaveltum um hvar hægt sé að geyma hlutinn.  Beint í ruslið og málið dautt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 13:15:24 / reitjel

ýmsar fréttir

hallærislegt, ömurlegt og mjög svo pirrandi!

Get ekki svarað commentum sjálf, það kemur alltaf upp villa í kóða sem er algjört kjaftæði því um daginn gat ég þetta alveg en nú er bara lok, lok og læs. Ætla að láta sem kommentaleysið á síðunni minni stafi af þessu, þeas að aðrir en ég eigi í vandræðum með þetta.

Annars er allt ljómandi gott að frétta héðan úr Selásnum, það er sko my new neighborhood, ekki Árbærinn, nei nei við skulum ekki láta miðaldrar konur hneykslast á því að við höldum að Rauðásinn tilheyri Árbænum. Maður þarf sko að passa sig á því, sérstaklega ef maður fer í Nóatún sem er btw dýrasta búðin í bænum.

Prinsessan á bænum er nánast altalandi að hennar mati. Hún kann reyndar um 40 orð sem er langt umfram getu jafnaldra hennar og svo inn á milli koma þessar svakalegu runur af jibberish sem við skiljum nátla ekki neitt í. Ótrúlega krúttlegt. Hún stýrir líka heimilinu að mikilli hörku, segir nei af mikilli staðfestu og leiðir okkur á hina og þessa áfangastaði í íbúðinni sem er mikilvægastir þá stundina og segir þá "koddu". Hvað get ég sagt, það er greinilegt að börnin læra það sem fyrir þeim er haft.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 12:35:21 / reitjel

netið

jei, loksins tengd við alheiminn.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 17:42:02 / reitjel

Flutt í bæinn!

Erum loksins flutt í bæinn, reyndar fyrir nokkru síðan. Höfum ekkert net og engan heimasíma enn sem komið er en það er allt á leiðinni. Gemsarnir virka þó fínt.

Heimilisfangið er Rauðás 16 og það er alltaf heitt á könnunni og þar sem ég er orðin heimavinnandi húsmóðir þá erum við mæðgur oftast heima svo endilega kíkið við.

bæ í bili,

Rakel.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 21:52:22 / reitjel

dúddídú og dirrindí

jibbí, vinnan formlega búin, brautskráning í dag þar sem ég var meira að segja kölluð upp á svið með tilheyrandi þökkum og blómvendi fyrir unnin störf í vetur. Takk fyrir mig sömuleiðis. 8)

Veturkonungur hefur líka ákveðið að fara, í annað og vonandi í síðasta sinn fyrir sumarið enda fuglarnir aftur komnir á fúll svíng í sitt óðals- og maka atferli.

Annars er allt ljómandi gott að frétta héðan, komum í bæinn í næstu viku til að taka við íbúðinni, mála og gera hana fína áður en við flytjum inn. Áætlaður flutningur er þá eftir :$ aðra helgina í júni, já held það bara. :lol:    

see´ya


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 11:26:09 / reitjel

veturkonungur villtur

Hversu skemmtilegt er það að vakna nú þriðja daginn í röð og sjá að allt er á kafí í snjó (engar ýkjur)? Hér þarf að troða snjóinn upp í hné til að komast út á stæði. Ekk nóg með það heldur mun þetta halda áfram á morgun líka. Fúlt. Og við sem erum komin á slétt.

Svo glöð að við séum á leið til Reykjavíkur þar sem nú er bara kalt og rok, enginn snjór. Snjókvótinn minn er svo yfirfullur og útnýttur að ég kem ekki til með að sakna hans næstu árin.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 12:09:03 / reitjel

Fréttir!!

jæja allir löngu hættir að koma inn og lesa bloggið enda hef ég verið afar ódugleg við að henda e-u hingað inn.

En nú eru sko fréttir fyrir þá sem ekki hafa heyrt þær eftir öðrum leiðum:

1. við erum að flytja í bæinn í júni, það er í næsta mánuði :D  n.t.t. í Rauðás í Árbænum. Innflutnings- og heimkomupartý auglýst síðar.

2. Katrín Birna er farin að labba um allt og getur sagt fullt af orðum eins og "ekki" okkur til mikillar ánægu og "skæla" þegar e-r er að skæla í bókunum sem hún "les", og hún getur kubbað með duplo langt á undan "þroskaáætlun" hún er nátla svo fullkomin.

3. Kennslan er búin, prófin eru búin, á bara eftir að afhenda einkunnir og sýna prófin og láta sjá mig á brautskráningunni. ÞÁ ER ÉG BÚIN!. (ef e-r hefur áhuga efna- og líffræðikennslu við FNV þá er staðan laus til umsóknar.)

4. VIÐ ERUM AÐ KOMA Í BÆINN!! :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 22:54:28 / reitjel

Fréttir

Örstutt fréttaskot!

1. Dóttir mín tók fyrstu skrefin í vikunni. 8)

2. Í morgun boraði hún í nefið og borðaði horið. Ég er svo stolt af dóttur minni. :haha:

3. Skv. segulómskoðun af lendarhrygg mínum er ég með (og hér kemur bein tilvitnun í sérfræðingana): gríðarstórt brjósklos!  En engrar aðgerðar er þörf þar sem ég er ofurkona og finn ekki fyrir neinum einkennum. Sérfræðingurinn mælti þó ekki með fallhlífarstökki næsta árið!  8|

4. Það er bara vika í páskafrí hjá mér og eftir 2 vikna páskafrí er bara ein vika eftir af kennslu. Get varla beðið. :P

Næst veðurfréttir en hér er gjörsamlega allt á kafi í snjó og skv veðurtunglamynd sem minn veðurfréttamaður sýndi í kvöld þá var autt fyrir sunnan. Figures. :S

Sjáumst eftir viku.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 21:34:28 / reitjel

smá fréttir

ahh, smá fríkvöld og bið eftir Aðþrengdum og bara eitt að gera í stöðunni; blogga pínulítið enda kominn tími til. Nóg að frétta að norðan. Prinsessan eins árs og er farin að ganga meðfram öllu og teygja sig í allt sem er rétt utan seilingar. Öryggismörkin hafa verið hækkuð, fleiri handföng af skúffum og skápum verið fjarlægð og eins og einn gestur orðaði það snyrtilega að þá er íbúðin ansi barnavæn. Engin hætta hér á ferð..... nei nei eða þannig. Svo er líka verið að reyna á þolmörk foreldranna. Veit vel að nei þýðir e-ð sem er bannað og þá er ennþá meira spennandi að gera það sem er bannað. Algjör púki. Svo hlær hún bara að manni! Einhvern vegin bjóst ég ekki við að uppeldi tæki svona fljótt við af huggulegheitunum. 

Kennslan gengur ágætlega og skv. könnunum þá er maður meira að segja skemmtilegur kennari.  Ekki nóg með það heldur verður mín líka saknað  8) Rosalega góð egósprauta ofaní alla vinnuna sem hefur farið í þessa kennslu. Ef e-r þarna úti hefur áhuga á starfinu, þe fullri stöðu í kennslu í efnafræði og líffræði, þá er um að gera að slá til og sækja um. Fín reynsla.

En hvað ætlar daman sér að gera í borginni? Jú, hún er búin að verða sér vonandi út um mastersverkefni hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs og ætlar að taka fyrir þróunarvistfræði hornsíla á Íslandi, takk fyrir. Búin að senda inn umsókn, bara að sjá hvort verkefnið verði ekki samþykkt. Afar spennandi, fékk Bjarna Kristófer sem aðalleiðbeinanda og Hilmar Malmquist og Sigga Snorra sem meðleiðbeinendur. Ótrúlega gott teymi. Hlakka ekkert smá til að komast í felt og rannsóknarvinnu og vísindalegar umræður og ... og....  flytja suður  :D

Læt þetta duga í bili, við komum um páskana, aðallega í leit að húsnæði en ef það verður e-r hittingur þá væri ótrúlega gaman að sjá ykkur sem flest.

bleble


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 11:36:54 / reitjel

Nýjar myndir af afmælisbarninu

Elsku litla blómið okkar varð 1 árs um daginn!

Hér eru nokkrar myndir frá afmælisdeginum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 16:51:10 / reitjel

nýjar myndir

Gott fólk, nýjar myndir komnar á barnalandið.

Smellið hér!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Myndir